Auglýsing

Hver er ég???

  • Nafn: Dagbjört Harðardóttir

Orð dagsins...

Málið er að gera ekki bara það sem þér finnst skemmtilegt, heldur finnast skemmtilegt sem þú ÞARFT að gera...

Okei Im back

07. janúar 2009 klukkan 23:32

Næst þegar ég segist ætla að hætta að blogga, eða skipta um síðu en flytja til afganistan... þá skuluði undir öllum kringumstæðum EKKI hlusta á mig!.... Ég er með bloggfíkn... byrja alltaf aftur.... Þetta er svipað og með reykingarnar skiljiði....

En eins og flestir vonandi kannast við þá er komið nýtt ár... árið 2009.... árið sem ég næ þeim háa aldri TUTTUGUOGTVEGGJA..... árið sem allt á að verða bara aaaðeins betra. Á minum venjulega bloggrúnti sá ég það að það er yfirgengileg bjartsýni í mannskapnum. Allir tala um að árið 2009 eigi eftir að verða miklu betra en 2008 og svo framvegis. Alltaf gott að hafa bjartsýnina að vopni segi ég að minnsta kosti. Ég held ekki, ég VEIT að 2009 verður betra en 2008. 2008 var ömulegasta ár sem ég hef á æfi minni upplifað svo að það getur varla versnað úr þessu. Reyndar má ekki gleyma því góða ((því ég er svo jákvæð þið skiljið)) að þá byrjaði ég náttúrulega með Óla í febrúar 2008.. þannig það var kannski ekki ALLT slæmt. Svo fékk ég náttúrulega íbúðina mína, sem er NICE.. En eins og flestir kannski kannst við þá er það yfirleitt það slæma sem stendur meira upp úr og ég held maður megi alveg vera duglegri við að láta það góða standa upp úr. T.d. ef þú ert í einhverju volæði og hugsar hvað allt er slæmt.. reyndu þá að hugsa hvað er gott líka. En bilív mí, ég veit að stundum er ekkert hægt að hugsa jákvætt.
Og ég verð alveg að viðurkenna það að stundum nennir maður hreinlega bara ekkert að hugsa jákvætt.. en það er alltaf samt þess virði að reyna.

ég nenni ekki að gera einhvern annál fyrir árið en ég skelli inn nokkrum myndum ;)


hress í afmælinu mínu


Ég og John í afmælinu mínu... helvíti hress


ég og kristrún í afmælinu mínu...



Ég og óli


Arna að reyna við mig eins og alltaf...


Við skelltum okkur á gullfoss og geysi að sýna útlendingnum sem arna dró hingað... hehe djók Barabara bara.. fín gella

...Okei verð að fara að sofa bæti inn fleirum á morgun

Ný Síða

05. nóvember 2008 klukkan 00:35
123.is/daggan


.....Svo miklu betra

Vandræði

01. nóvember 2008 klukkan 00:03
Okei.... stjórnunar síðan á bloggar.is er ekki svo erfið.. en ég finn ekki þar sem ég get lagað tenglana mína!!!...

einhver?
hjálp?

annars færi ég mig yfir..... eitthvað annað...

muhahahaha...

love
Degs

Ömulegir dagar

29. október 2008 klukkan 16:10
Jæja.....
já ég er búin að vera veik.... og ekki bara veik veik heldur VEEEIIIIK!!. lyggja í rúminu veik... ojbara hvað það getur nú verið viðbjóðslegt!.. Sakna stelpunnar minnar í leikskólanum svooo mikið!!... EEeeen ég hitti hana á morgun :)

Annars er bara ekki neitt að frétta nema þessi veikindi á heimilinu... loksins þegar ég er að stíga upp úr þessu þá er óli  orðin alveg lamaður af veikindum... Merkilegt samt hvað karlmenn geta verið aumir þegar þeir eru veikir!... En ég hugsa bara vel um manninn minn á meðan...

Á laugardaginn byrjuðu veikindin að hellast í mig, en ég lét það nú ekki á mig fá því ég verð nottlega ekki veik sko... og fór með pabba og vilborgu að skoða hellisheiðarvirkjun og svo skutluðu þau mér í Hveragerði til tengdó.. en þar var óli. Fórum í massa göngutúr og mér varð ÓGEÐSLEGA kalt!!.... gæti verið smá ástæða veikindanna ... hver veit... Svo höfðum við það nú bara kósý yfir sjónvarpinu og fórum snemma heim á sunnudeginum vegna þess að ég var svo ónýt... jah... rúmið mitt  var svo besti vinur minn næstu daga...
ég reyndar lét verða af því að vaska upp í gær!... hipp hipp hurrei!... en eftir það var ég líka dauð og fór í sturtu og að sofa...   Vaknaði svo ónýt í morgun en ætla sko aldeilis að fara í vinnuna á morgun! :) ég bara meika ekki þessa heimveru lengur :)

Jæja... skemmtileg vælusaga af mér..

Annars er ég að spá í að hringja í Sonju í kvöld og láta hana bjóða mér í kaffi.... ég bara GEEET ekki verið inni lengur....

en untillneksttæm

Deggs

Bónusferð og hamingja

13. október 2008 klukkan 20:04
Oh ég þoli ekki orðið FLE... eða þúst það er ekki orð.. en fólk notar þetta samt... ógeðslegt orð...

Enívei..... Ég fór í Bónus áðan, var samt ekkert að hamstra svona eins og var ráðlagt, keypti bara svona það sem þurfti og kannski pínu meira en það, en það gerist samt eiginlega alltaf.
Í grænmetinu var gaur, eða ég held það hafi verið gaur.... kannski var það geimvera, hundur eða úrkynjað sæði frá Davíð Oddsyni... hver veit... Allavega... þessi "vera" var að raða tómötum... og ég sagði mjög hressilega... HEY má ég taka einn kassa... fékk til baka... mmm.. sem heyrðist valla.. ég kippti mér svo sem ekki mikið upp við það og hugsaði bara, æji... vondur dagur fyrir þennan í dag... Stuttu seinna var ég komin með grílukerti á nefið og rauð augu inn í kælinum því ég var svo lengi að leita af gúrkunum, þannig ég ákvað að fara aftur til úrkynjaða hundsins sem átti slæman dag.. og spurið svo ofur varlega... heyrðu, geturu sagt mér hvar gúrkurnar eru... EKKI TIL... og ég ... fyrirgefðu? hvað sagðiur... EKKI TIL... og ég.. já eru þær ekki til...  þá hristir gaurinn bara hausinn.. Svo ég flýti mér bara út úr kælinum og segji við óla að við verðum bara að sleppa gúrkunum í salatinu í kvöld. Í alvöru!... fólki út um allt vantar vinnu um þessar mundir, vertu GLAÐUR að hafa vinnu, og eitt.. þú vinnur í verslun... það þarf að vera allavega 2% af þjónustulund í þér, þó þú sért yfirleitt á lagernum eða inn á skirfstofu eða what ever... það þarf að vera!   Það eru allavega mín skilaboð. En eins og ég segji, kannski átti greyjið strákurinn bara ROSALEGA slæman dag.... en þá hefði hann svo sem alveg geta bara tekið sér veikindafrí!...
Svo kom ég á kassann... Þar var stákur sem að gjörsamlega glansaði af þjónustulund og gleði. Hann án alls gríns dansaði við að skanna inn vörurnar.. við erum að tala um að snúa sér í hring og allt sko.... Sem varð til þess að ég dansaði bara líka við að láta vörurnar í pokana. Svo keypti ég ógeðslega kramið brauð og hann bara.. HEY... brauðið er kramið.. viltu ekki nýtt??  ... og ég var svo glöð með bara það að hann hafði fyrir því að segja mér þetta að ég bara.. nei nei nei ég get alveg borðað kramið brauð... og labbaði svo út úr búðinni með bros á vör :) .... ((reyndar borgaði óli... hefði ég borgað hefði ég kannski ekkert verið brosandi..))  ... En þegar þjóðfélagið stendur ((þó það standi nú eila ekki)) svona eins og um þessar mundir þá verður maður líka að muna að brosa... og muna líka að tala um það góða :) 
Góð regla er að segja alltaf eitthvað tvennt fallegt fyrir eitt slæmt. þið skiljið :)

Síðasta vika hefur verið alveg brjálæðislega viðburðarík hjá mér, eins og kannski mörgum örðum.... og til þess að einfaldlega meika þessa viku... og næstu vikur líklegast þá þarf ég að horfa voðalega jákvæðnislega á allt. Stundum langar mér að kasta allri jákvæðni bara í burtu og lyggja undir sæng og grenja í koddann minn, en það fer bara svoldið illa með sálina, þó það sé kannski bara hálfur dagur í volæði.
æji þið vitið hvert ég er að fara, á eitthað voðalega erfitt að koma orðum að hlutum í dag....
En .. allavega, þá er ég aðeins búin að létta á mér...

untillneksttæm
Dagg

Bloggfrí á enda

06. október 2008 klukkan 22:17
Ég er hrædd um að bloggfrí mitt sé á enda.
Ég er búin að vera að finna þörfina að blogga núna undafarið og hef meira segja stofnað aðra bloggsíðu.... En ég ákvað eftir eina ömulega færslu þar að gefa skít í hana því að ég nenni ekki að læra á nýtt kerfi. Mér finnst þetta kerfi fine og ég held mig við það.

Ég held ja fnframt að ég sé að blogga fyrir einn lesanda, og það er ég sjálf. Það er kannski bara alltílagi, þetta er meira spuring um útrás á lyklaboriði hjá mér heldur en að spreða einhverjum merkilegum boðskap út um netheimana. Reyndar hef ég áræðinlegar heimildir um að ég hafi einn annan lesandi heldur en sjálfan mig. Ása er held ég mikið fan af þessari ágætu síðu.
Sem minnir mig á það. Ég fór og heimsótti hana og litla sæta strákinn hennar um daginn. Þau eru svo sæt og þau meira að segja bökuðu köku áður en ég kom þannig ég fór frá þeim úttroðin súkkulaði með klingjandi bjöllur að neðan. Litla krúttið fékk einmitt nafn í gær og það er ekkert annað en Benjamín Arnar Ágústsson. Ég þarf að kíkja á þessi krútt mjööög fljótlega aftur.

Eruði að grínast með hvað kreppan er bara að ríða rækjum all over!. Ég er að ÆLA á þessu krepputali. Það er ekki talað um neitt annað í útvarpi, sjónvarpi og á vefmiðlunum. Svo skirfar landlæknir línu á landsmenn til að brína fyrir öllum að valda ekki óþarfa kvíða eins og td fyrir börnin, gamalmenni og viðkvæma.... Hvernig eiga þau að forðast þetta? loka sig inn í herbergi og henda útvarpinu og sjónvarpinu...  í alvöru, hefði kannski komið ein frétt í fréttatímanum áðan sem væri um eitthvað gott þá hefði það verið æðislegt, þó svo að við íslendingar og kannski flestir gleyma því góða.... þá er ég viss um að ég hefði munað eftir þessari frétt.  Æji þið skiljið, ég er bara nett pirruð á þessu krepputali, þó það sé víst óumflýjanlegt.

En það hefur margt gerst hjá mér síðan ég bloggaði síðast. . . Eða margt... allavega eitthvað smá :) Ég byrjaði s.s. í nýrri vinnu og vinn núna sem sérkennari á leikskólanum Ásum í Garðabæ. Það er alveg æðislegt og stelpan "mín" er bara algjör gullmoli og það er sko margt sem hægt er að læra að þriggja ára börnum. Lífsgleðin og hamingjan leynir sér ekki  þrátt fyrir margt sem þarf að berjast við, svo er maður að kvarta yfir því að maður fái bólu. hmm.. þetta er allavega umhugsunarvert.
Mér líkar allavea voðalega vel þarna á Ásum og ekki skemmir fyrir hversu æðislegur starfsmanna andinn er. Allir eru svo elskulegir og allir að vilja gerðir og það er svo góð samvinna og bara svona samkennd einhver. Hef eiginlega aldrei kynnst svona vinnuumhverfi. Alveg frábært fyrir heilsuna :). . . 

Nú er ég í einhvejrum gír og langar að skirfa svona áttahundruð línur í viðbót en ég held að ég láti við sitja hérna og snúi mér að sjónvarpinu :)

Bið ykkur vel að lifa.... allavega þig ása :) þú ert örugla sú eina sem lest :)

knús
Dagga

Líkkistur, afmæli og góða veðrið...

29. maí 2008 klukkan 14:46
Á vísi í dag segir frá því að maður kærir "fóstbróðir" sinn (voru saman í kórnum Fóstbræður) fyrir að hafa stolið frá sér líkkistum....... Sá ákærð i neitar allri sök og segist hafa keypt þá af öðrum manni í góðri trú. Taka skal fram að þessir menn eru í útfarabransanum... Think god annað væri sick.....
Næsta frétt sem ég rakst á var um vörubílstjóra sem voru að mótmæla á Austurvelli. Þeir höfðu með sér 11 líkkistur sem var semsagt ein kista á hvern ráðherra fyrir utan Jóhönnu Sigurðardóttur, hún fékk blómvönd því hún er búin að standa sig svo vel í öllu þessu mótmæla dæmi. Eigum við eitthvað að blanda þessum málum saman? Kannski að meinti líkkistu þjófurinn sé vörubílstjóri eða stiðji þeirra málstað harkalega? Hver veit.... Vil samt koma því á framfæri að þetta eru einungis samsæriskennkisturnar.jpgingar sem komu fyrst upp í hausin á mér og þetta er með engum hætti á rökum reist..... Gæti samt alveg verið þið sjáið til.
Á myndinni hérna til hliðar sjást svo allar ellefu líkisturnar. Mér finnst nú reyndar gott hjá þeim að mótmæla núna loksins öðruvísi en að vera út í umferðinni. Þetta leggur engan í hættu eða er fyrir einhverjum á neinn hátt. Nema kannski ráðherrunum. Það færi allaveg ónot um mig ef einhver vildi láta mig í líkkistu. En þessir ráðherrar láta ekkert á sig fá og finnst þetta örugglega bara kúl. 

  
Annar er að að frétta að uppháldsbærinn minn er 100 ára og að því tilefni verður afmælishátíð sem byrjaði í dag og stendur til sunnudags.
ég var að skoða dagskránna og mér leyst bara nokkuð vel á hana.
Þið getið dagskránna inn á www.hafnarfjordur.is
Ég er allavega búin að ákveða það að ég ætla á tónleika á Ásvöllum klukkan hálf fimm á sunnudaginn. En þá verður hvorki meira né minna en 700 manna kór að syngja :) Og meðal annars minn gamli kór, Kór Flensborgarskólans. Í kvöld er svo svaka game niðrí bæ. Tískusýning og svona skemmtilegt. Gaman að sjá bæjinn sinn svona lifandi :) Ég held ég skelli mér bara niðrí bæ í kvöld. Sá sem vil koma með gjörasvovel ad tala við mig.

Skemmtilegast af öllu er að hafnarfjörður fær sko aldeilis gott veður í afmælisgjöf. Allaveg í dag... hver veit með morgun daginn :)

en  ég læt þetta gott í bili
leiter

-----

Okei smá update... ERUÐI AÐ DJÓKA MEÐ JARÐSKJÁLFTANN!!!
hann var 6,1 á ricther...... ég er hætt að titra loksins.... en Jarðskjálftar eru mín versta martröð.... vona að það komi ekki annar!

Sól, sumar og próf

28. apríl 2008 klukkan 10:17

Komiði marg blessuð og sæl kæru aðdáendur. ((allir þessir 3))

Það er jafnvel að sumarið sé að ganga í garð, sumardagurinn fyrsti allavega búinn . . . vá hvað é g vona það frá innstu hjartarótum að sumarið verði brjálæðislega gott... svona þar sem ég verð að vinna úti . . þá get ég kannski loksins orðið brún! En... við skulum ekki fara offörum!.. ég verð nottlega að flytja til spánar í svona átta til níu ár, þá kannski fæ ég smá lit, roða í kinnarnar eða eitthvað þannig.
En það er bara svo gaman að hafa gott veður. Skapið á manni verður betra, það er hægt að gera svo mikið, skella sér á línuskauta, fara í göngutúr, sund, bláa lónið, nauthólsvík, chilla á Austurvöllum með bjölla og svo margt marg fleira. Það er líka bara skemmtilegt að fara í ferðalag í góðum veðrum... nema þegar maður leggur af stað í steikjandi hita og glampandi sól en svo þegar maður kemur loks á áfangastað eftir góð svitaköst í bílnum, þá er rigning og rok! það er eitthvað sem kallast svekkelsi.  Sólin skín núna, en það er rok sam sem áður. Greyjið minn ástkæri sambýlismaður ((ATH hvað ég er fullorðin)) er úti að vinna í bleitu og ógeði... vorkenni straumar til hans....  En svona af því við erum að tala um sumarið, þá eru litirnir í kringum okkur líka svo mun fallegri og strekari á sumrin, græni liturinn verður ekki eins grár, himinnin verður alveg heiðblár, hvítu grindverkin verða svo skjanna hvít og fólkið að klæðast gulu, bleiku, grænu og örðum fallegum litum.... Shit hvað ég er orðin eitthvað væmin týpa...... 

Annað sem lyggur þungt á manni þessa dagana eru þessi blessuðu próf. Ég þoli ekki próf! ég verð leiðinleg í prófum, ég verð  ljót í prófum, mér verður illt í maganum í prófum, ég drekk mikið kók í prófum, ég á erfitt með að einbeita mér í prófum, ég fæ brjáluð kvíðaköst og held að himininn sé að detta á mig í prófum!...... Próf koma sem sagt mjög illa við mig. Eins og mér finnst yndislega gott að sofa, þá sef ég líka voðalega lítið í prófum og þegar ég sef þá sef ég illa. Spurning um að aðeins að reyna að taka smá chillpill á þetta... jahh eða svefntöflu.
Ég fer í heil sex próf. Mér finnst það mikið!..... alveg verð ég að viðrukenna það. Aðal læripleisið verður ekki upp á gamla bókó eins og síðustu próf heldur bara heima í fallega og hlýlega eldhúsinu mínu. Þar verður sitið stíft við og rýnt í allar þessar hundraðogsjö bækur sem ég þarf að lesa fyrir prófin. Vona bara að ég fái stelpurnar í heimsókn að læra :) ég skal lofa að hella upp á geggjað gott kaffi fyrir ykkur!!!....... kannski skal ég meira segja baka köku! . . . en fyrst þarf ég að kaupa mér kökuform.

En já....
við segjum þetta gott í bili

Titlar eru gagnslausir

18. apríl 2008 klukkan 01:26
myndVááá..... hafði séð myndbandið með This Is My Life...
Það er algjöööör tær snilld!..... Það er svo mikill húmor í því..... ég var svo glöð að það kom ekki eitthvað svona klént leiðindarmyndband þar sem að Regína og Frikki væru eitthvað úti í vindinum og rigninguni og þetta týpíska.. Mér fannst þetta allavega alveg hitta í mark...
Þeir sem eru ekki búin að sjá þetta geta skoðað þennan gullmola hérna... http://nova.is  ..... SNILLD :)
Og gaurinn sem leikur aðalhlutverkið..... vá þvílíkur snilli! :) ..... en já...  ætla bara að segja hey hey hó hó við þurfum ekki meira frelsi....... skál

en óneitanlega leiðir þessi umræða hugan að símafyrirtækjunum. Ég er hjá Vodafone og í gær var hringt í mig og spurt mig SKO Tala meira. Borga minnahvort ég vildi koma í SKO. Ég var einu sinni í SKO og ég hætti því afþví að ég  þoldi ekki að þurfa alltaf að fara á heimabankann til að kaupa inneign. Ég sagði það við píjuna sem hringdi í mig og hún bara hey..... no prob þú getur keypt núna í hraðbönkum....  ég sagðist ætla að sjá til.... og hún sagðist ætla að hringja daginn eftir... sem hún btw gerði ekki.... ég er reyndar alveg fegin, ég á svo erfitt með að segja nei við fólk... þoli ekki þegar það er verið að reyna að selja mér eitthvað....
En ég held samt sem áður að ég skipti ekkert yfir. en það var svoldið fyndið að þegar úberhressa gellan sem hringdi í mig spurði mig hjá hvaða símafyrirtæki ég væri og ég bara Vodafone .... þá var hún bara heeeyy ertað kidda! það er dýrasta símafyrirtæki í heimi!..... og ég alveg já já já.... ég veit, en það er svo öruggt og gott... klikkar ekkert.... og þá segir hún, já SKO er dótturfyrirtæki Vodafone... svo þetta er allt tipptopp.... Æji ég veit ekki, hún var bara ekta sölumaður, sagði bara nákvmælega það sem að þurfti.... ég myndi svo sem alveg gera það líka ef ég þyrfti að selja það og fengi meira borgað fyrir það sem ég seldi....  En þetta er svo sem bara orðið óþarfa tuð hjá mér :)

Rúmið kallar alveg voða hátt núna, enda vinna klukkan átta í fyrró :)
svo stanslaust stuð um helgina :)

hagiði ykkur vel og drúllist til að kommenta :)
love

jááá fínt já sæll

07. apríl 2008 klukkan 14:20
Sælt veri fólkið....

Ég var að skoða tölvupóstinn minn. Mikið fæ ég leiðinlegan tölvupóst alltaf. Ég fékk eins og alltaf póst frá Núinu þar sem ég vann 1500 kr afslátt af gelnöglum með framlengingu.... hæpið að ég noti það og bæ þe vei þá er ég alltaf að vinna eitthvað frá Núinu, oftast snyritrímtment... eða það er að segja afslátt af því.... Hef aldrei notað það..
En svo ég haldi nú áfram að lýsa andstyggð minni á tölvupósti þá er ég líka alltaf að fá einhver svona keðjubréf sem að sendur að ef ég sendi þetta ekki til ákveðið margra manneskjna fyrir ákveðinn tíma þá hrinur ástarlíf mitt, ég verð drepin eða á aldrei eftir að eiga mann... en aftur á móti ef ég sendi til baka þá gifti ég mig eignast 10 börn, engin deyr og ég lifi hamingjusöm for ever after..  Þannig vil nú til að ég sendi aldrei svona mail til baka. . .  ástarlíf mitt er fínt og ég er mjög hamingjusöm.... engin hefur reynt að ræna manninum mínum og hann hefur ekki ennþá farið frá mér.. vinir mínir allir á lífi og svo framvegis. Fólk hlítur nú samt að senda þetta áfram út á húmorinn... ekki bara .... "oh nei ég dey ef ég sendi ekki"..... en mér finnst allavega leiðinlegt að fá svona .... :p
Svo fær maður nú reglulega auglýsingar um viagra, datesíður og stjörnuspá frá afganistan. En þetta er nú eitthvað sem ég hendi án þess að lesa. Thank god fyrir junk hólfið :)

Já annars er lítið að frétta. Skellti mér í afmæli til Sonju á föstudaginn og eins og ég sagði hér í síðata bloggi þá varð hún tvítug kjéllingin :) Það var rosa gaman.... svo eftir ammæli skelltum við okkur nokkur á A Hansen þar sem ég hitti kallinn minn og við LÖBBUÐUM heim.... nú eigum við heima rétt hjá down town HFJ!.... sem er sweet þegar maður er fátækur og má ekki við að taka leigara.... :) Á laugardeginum fór ég svo á árshátíð hjá SMFR. Það var bara fínt, maturinn var reyndar ekkert ossom, en það bættist upp með því að ég vann í happdrætti :)..... ég vann ostakörfu... en þar sem ég er svo kröfuhörð langaði mig í önnur verðlaun.... og það var einhver sveitagisting... MIG LANGAR SVO Í FERÐALAG!!!!!!!!!!!!! nennir einhver að koma í ferðalag!!!!!!

En þá held ég snúi mér aftur að því sem ég á að vera að gera :)

knús

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...